Tilgangur Vigor Netaðgangsstjórnunar er fyrst og fremst að tryggja að notendanöfn nýrra notenda stofnist á IBM Power System i og ef aðgangur er tekinn af notanda í Active Directory sé aðgangur á IBM Power System i gerður óvirkur (e. disabled).
Aðgangsstýringu er stjórnað frá MS Active Directory með dreifilista. Dreifilistinn er skrá yfir notendur sem eiga að hafa aðgang að IBM Power System i kerfum. Vigor ADN vaktar breytingar á listanum og uppfærir notendanöfn. Ef notandi á dreifilista er ekki til á IBM Power System i er hann stofnaður, ef notandi er tekinn úr dreifilistanum, eytt eða gerður óvirkur í Active Directory er hann gerður óvirkur (e. disabled) á IBM Power System i.
Vigor ADN ræður við mismunandi notendanöfn sama notanda á milli kerfi. Notandinn JONJ á IBM Power System i má vera Jón Jónsson í AD.