Hvað er viðverukerfi?
Viðverukerfi heldur utan um það hvar starfsmenn eru þannig að símaborðið og aðrir starfsmenn eigi auðveldara með að ná sambandi við þá. Þegar fyrirtæki stækkar verður sífellt erfiðara að ná í samstarfsaðila til viðtals. Það kannast margir við vandræðin við að leita að einhverjum þegar mikið liggur við, en enginn veit hvar viðkomandi er. Og einnig að hafa heyrt þessar línur, "hann skrapp frá í mat, hún fór á fund, hann verður í fríi út mánuðinn". Með því að nota viðverukerfi er á einfaldan hátt hægt að sjá hvar starfsmaðurinn er hverju sinni. Mörg íslensk fyrirtæki eru farin að færa út kvíarnar og reka starfsstöðvar víða um heim og er ekki síður mikilvægt fyrir slík fyrirtæki að hafa skjótan og góðan aðgang að starfsfólki sínu.
Hvað er átt við með starfsmannaupplýsingakerfi?
Í Vigor Viðveru er hægt að skrá helstu upplýsingar um starfsfólk á einn stað og eru þær aðgengilegar fyrir alla innan fyrirtækisins. Svör við spurningum eins og hvað er gsm númer Jóns eða hvar situr Páll er að finna í starfsmannaupplýsingakerfinu.
Annað
Kerfið hefur þrenns konar viðmót, hefðbundið gluggaviðmót, WAP-viðmót og vefviðmót sem gerir viðveruskráningu mögulega óháð stað og stund.
Frekari upplýsingar má nálgast í handbók um kerfið.