Vigor Arður sér um útreikning á afborgunum, verðbótum, gengismun, vöxtum og dráttarvöxtum og bókanir í fjárhagskerfi o.fl. Tengingar við innheimtuferli og banka sýna staðsetningu og stöðu krafna á hverjum tíma.
Vigor Arður styður helstu greiðslutegundir verðbréfa eins og jafnar afborganir og óreglulegar afborganir, jafngreiðslulán (annuitet), kaupleigusamninga o.fl.
Öflugar aðgangsstýringar eru í kerfinu og fjölbreyttir möguleikar á greiningu.
Vigor Arður býðst sem kerfisveitulausn.