Öflugt áætlanakerfi með sveigjanlegri aðgansstýringu. Áætlanakerfið vinnur á „raungögnum“ þ.e. upplýsingar birtast um leið og þær eru skráðar í kerfið. Við áætlanavinnu er greiður aðgangur að raungögnum bókhalds. Samanburðarsýn á bókhaldsgögn er auðskiljanleg með hlutfalli og litamerkingu samkvæmt vikmörkum.
Áætlanakerfið flokkar lykilflokka niður á mánuði (grófáætlun) og áætlar bókhaldsreikninga niður á mánuði. Margar áætlanir og áætlanasamsetningar eru mögulegar. Inni í fjárhagskerfinu er hægt að gera fyrirspurnir beint inn í kerfið. Mögulegt að velja tvö bókhaldsár og þrjú áætlanaár til samanburðar. Með aðgangsstýringum er mögulegt að takmarka aðgang notanda við gögn sinnar deildar. Annar notandi getur fengið stærri hluta áætlunarinnar eða áætlunina í heild sinni.
Hver einstök skráning eða breyting á upphæð áætlunar er vistuð á rauntíma með tímastimpli. Þannig má skoða skráningarsögu einstakra færslna eða hvernig áætlunin var í heild sinni á tilteknum tíma
Tenging við Excel er dýnamísk og notendavæn hvort sem framkvæmdur er flutningur á gögnum inn í áætlanakerfið eða út úr kerfinu. Notandi getur fyrirfram skilgreint Excel skjal sem sækir rauntölur úr áætlanakerfinu. Hvort sem unnið er með gögnin í Excel skjali eða áætlanakerfinu er mögulegt að samræma upplýsingar í báðum kerfum.
Nokkur helstu atriði í áætlanakerfinu eru: