• Veftré
  • English
  • A-
    A+
Þú ert hér:

Vigor - Eignakerfi

Eignakerfið er öflugur og sveigjanlegur hluti Vigor viðskiptahugbúnaðar, ætlað til að halda utan um eignaupplýsingar, hvort sem þær eru eign- eða gjaldfærðar.

Helstu vinnslur í kerfinu lúta að skráningu og viðhaldi upplýsinga um eignir jafnframt því að reikna út endurmat og afskriftir eigna, bæði samkvæmt reglu ríkisskattstjóra og/eða samkvæmt fráviksreglu.

Útreikninga endurmats og afskrifta er hægt að framkvæma mánaðarlega. Við útreikning endurmats samkvæmt skattareglu er stofnverð eigna og afskrifta endurmetið samkvæmt stuðli frá Ríkisskattstjóra eins og hann er á hverjum tíma en fjárfesting tímabilsins (ársins) er ekki endurmetin.

Í útreikningi endurmats samkvæmt fráviksreglu er stofnverð eigna og afskrifta endurmetið samkvæmt stuðli sem reiknaður er út miðað við vísitölur byrjunar- og lokadagsetninga hverrar vinnslu. Hver fjárfesting er síðan endurmetin samkvæmt stuðli sem reiknaður er út miðað við vísitölu lokadagsetningar vinnslu og dagsetningu hverrar fjárfestingar (eignar).

Afskriftir eru reiknaðar samkvæmt hámarks- og afskriftarprósentu, skatta- og fráviksreglu.

Næstu skref

Hafa samband við Vigor:
Sími: +354 563 6100

Hafa samband