Fjárhags- viðskiptamanna- og lánadrottnabókhaldið er sambyggt í eitt kerfi.
Fært er samhliða á fjárhags- og viðskiptareikninga.
Bókhaldslykill er byggður upp á töflum sem mynda víddir. Með víddum opnast fjölbreyttir notkunarmöguleikar og öflugt tæki til kostnaðargreiningar.
Utan á bókhaldslykilinn má hengja ýmsa uppgjörslykla. Uppgjörslyklarnir eru notaðir til leitar og skýrslugerðar.
Í fjárhagskerfinu eru engin takmörk fyrir því hvað hægt er að vista mörg ár og engin takmörk á fjölda fyrirtækja.
Öflugir möguleikar til fyrirspurna eru í kerfinu. Einnig er mikill rekjanleiki (Drill, Down, Zoom) frá samtölum niður á færslur og frá færslu í undirgögn, t.d. skönnuð skjöl, sölureikninga, innkaupapantanir eða færslur frá öðrum tölvukerfum.