Þrátt fyrir að reikna megi með því að flestir viðskiptavinir greiði skuldir sínar á réttum tíma er talsvert tímafrekt að halda utan um það sem útistandandi er og hvenær er komið að frekari innheimtuaðgerðum. Það skiptir meginmáli fyrir afkomu hvers fyrirtækis að innkoma sé sem hröðust og jöfnust. Til að sinna þessari þörf var Vigor innheimtukerfi hannað en með því er haldið utan um allar kröfur og eftirfylgni vöktuð.
Við hönnun kerfisins voru sveigjanleiki og aðlögunarhæfni höfð að leiðarljósi enda vilja fyrirtæki fara sínar eigin leiðir við innheimtu og samskipti við viðskiptavini. Innheimta er viðkvæm og ekki er hægt að beita sömu aðferðum eða koma eins fram við alla. Kerfið getur tekið tillit til viðbótarkostnaðar, fyrirmæla um ákveðinn tíma milli innheimtuaðgerða og getur haft samskipti við hvaða fjármálastofnun sem er.
Innheimtukerfið er sjálfstætt kerfi sem hannað er með það fyrir augum að auðvelt sé að tengja það við flestöll fjárhagskerfi sem eru á markaðnum.
Allir viðskiptareikningar bera ákveðinn vaxtakóða og innheimtuflokk og stjórna þeir eindaga og gjalddagaútreikningi, hvenær og hvaða innheimtubréf skuli prentast og hvort og hvenær viðkomandi reikningur eigi að fara í t.d. innheimtu hjá lögfræðingi.
Hægt er að stofna eins margar gerðir innheimtubréfa og óskað er en í kerfinu eru einfaldar prentstýringar.
Innheimtuflokkarnir eru mjög sveigjanlegir og áhersla lögð á að hægt sé að laga þá að þörfum flestra.
Fjárhagskerfi senda innheimtuupplýsingar í innheimtukerfið sem síðan sér um framvindu innheimtunnar, sendir skrá með greiðsluupplýsingum í banka, prentar út greiðsluseðla og/eða reikningsyfirlit, prentar innheimtubréf í samræmi við fyrirliggjandi stýringar og ákvarðanir, tekur við greiðslum úr banka og sendir greiðsluupplýsingar aftur inn í fjárhagskerfið.