Starfsmenn Vigor ehf. hafa þróað innheimtukerfi, greiðslukerfi og kröfumiðlara til að halda utan um innheimtukröfur, annast útprentun þeirra, vakta stöðu krafna, annast samskipti við bankastofnanir, kortafyrirtæki og innheimtufyrirtæki.
Kerfin eru sjálfstæðar einingar og getur hvert þeirra eða öll tengst hvaða upprunakerfi sem er. Með upprunakerfi er átt við t.d. reikningagerð, fasteignagjaldakerfi, sölukerfi, útgáfukerfi o.s.frv. Kerfin hafa verið þróuð til að geta keyrt á öllum helstu tölvuumhverfum s.s. IBM iPower System, Java og MS.net
Innheimtukröfur fara beint í kröfupott bankanna og kerfin eru tengd fyrirtækjabönkum og vefþjónustum bankanna með. Boðið er upp á rafrænar birtingar á kröfum, bein- og boðgreiðslur og tengingar við innheimtufyrirtæki og viðskiptaþjónustu.
Ferli innheimtukrafna annars vegar og prentun innheimtugagna (greiðsluseðla, ítrekunarbréfa o.fl) hins vegar er aðskilin. Prentun innheimtugagna er unnin beint úr Innheimtukerfi Vigor eða flutt til prentþjónustuaðila.