• Veftré
  • English
  • A-
    A+
Þú ert hér:

Vigor - Topplaun

Vigor Topplauner afar öflugt launakerfi sem hefur verið lengi á markaðnum og er í stöðugri þróun. Kerfið sinnir um 15.000 launþegum um allt land. Launakerfið þjónar fyrirtækjum af fjölbreyttri gerð og stærð, með allt frá fjórum starfsmönnum til tvö þúsund sem eru með flestar útgáfur kjarasamninga.

Kerfið er notendavænt og hefur nútímalegt viðmóti. Það er tengt flestum fjárhagskerfum á markaðnum ásamt stimpilklukkukerfum og starfsmannakerfum. Þá skilar kerfið rafrænum gögnum til banka, lífeyrissjóða og skattyfirvalda, upplýsingum til lífeyrissjóða og stéttarfélaga og einnig upplýsingum vegna kjararannsókna.

Saga hvers launþega er aðgengileg og hægt að vista ýmis skjöl í möppu fyrir hvern einstakling. Í sögunni er m.a hægt að sjá laun einstaklinga í gegnum tíðina, samninga o.fl.

Vefskil
Skilagreinar til skattstjóra og lífeyrissjóða eru sendar dulkóðaðar með XML sniði yfir netið.

Innskráning
Mikill vinnusparnaður er við skráningarformið í Excel fyrir launaupplýsingar, s.s. yfirvinnutíma, álagstíma, frítökurétt og svo framvegis, því formið er lesið beint inn í launakerfið.

Rafræn birting
Möguleiki er á að senda launaseðla rafrænt til banka sem birta þá í heimabanka hvers launþega. Hægt er að velja hvort launaseðill er einnig prentaður.

Kerfisveita
Til að tryggja hámarksöryggi gagna hafa margir notendur nýtt sér kerfisveitu TM Software þar sem gagnagrunnurinn er vistaður í öruggu rými með fullkomnustu afritatöku sem völ er á og öruggum aðgangsstýringum. Einnig er mögulegt að útprentun fari fram utan fyrirtækisins til að tryggja að viðkvæmar launaupplýsingar liggi ekki fyrir augum óviðkomandi.

Ítarefni


application/pdf

application/pdf
Stærð: 176 KB
Stærð: 66 KB

Næstu skref

Hafa samband við Vigor:
Sími: +354 563 6100

Hafa samband