Sölukerfið sinnir fjölbreyttum þörfum mismunandi fyrirtækja hvort sem það er smásala, heildsala, áskrift, innheimta eða aðrar vinnslur sem skila reikningi. Allar færslur úr sölukerfinu eru eðlilega beintengdar í vöru- og innkaupakerfið, verkbókhald, innheimtukerfi, greiðslukerfi, viðskiptagreind og áætlanakerfi. Hver sala myndar færslu beint í bókhaldið og sýnir því alltaf raunverulega stöðu framlegðar eða sölutalna allstaðar í kerfunum um leið og þær fara fram. Reikningar geta verið í einriti.
Skráningarmyndin er þægileg og einföld og sama skráningarferlið er fyrir sölu, tilboð og áætlun þannig að viðmótið er alltaf það sama. Sölumaður getur gefið línuafslátt, prentað afgreiðsluseðil, greiðsluseðil eða fylgibréf. Lagerstaða hvers vörunúmers er sýnd með myndrænum hætti og sækir sölukerfið beint allar upplýsingar um birgðir, sölu og pantanir vörunúmers. Einfalt er að safna saman nokkrum vörunúmerum í eitt númer eða svokallaða uppskrift eða safnnúmer og sér kerfið um að færa lagerstöðu hverrar vöru. Afsláttarmöguleikar eru fjölbreyttir hvort sem skráðir eru afsláttarflokkar, línuafsláttur, afsláttur á samsett númer eða fyrir vöruflokka, allt eftir þörfum hvers fyrirtækis. Sala með handtölvum er möguleg hvort sem þær eru með strikamerkjalesara eða ekki. Einnig er mögulegt að tengjast flestum kassakerfum sem eru á markaðnum.
Hægt er að útbúa og geyma sölupöntun og er sjálfvirk leit í biðpöntunum eftir vörum sem komnar eru á lager. Einnig er hægt að lesa inn skrá til að stofna fastpantanir og yfirlit t.d. frá banka eða greiðsluyfirlit frá kreditkortafyrirtækjum. Fastpantanir eða sölu á áskrift er hægt að stilla sem sjálfvirka færslu í sölukerfið og sér kerfið um að færa sölu og útbúa reikning sem getur verið rafrænn.
Mjög ítarleg sölugreining sýnir t.d. sölu á hvern viðskiptamann og val er um samtölu/sundurliðun á yfirvöruflokk, vöruflokk eða vörunúmer, A-B-C-greiningu eða „Topp – x“-greiningu og greiningu eftir tímabilum. Hún sýnir einnig sölu hvers sölumanns, sundurliðaða eftir viðskiptamanni eða vörum. Upplýsingar aftur í tímann um sögu vörunúmers eða sölumanns eru alltaf aðgengilegar eins langt aftur og gagnasafnið nær. Með þessum greiningartólum er m.a. þægilegt að útbúa söluáætlanir fram í tímann.