• Veftré
  • English
  • A-
    A+
Þú ert hér:

Vigor - Verkbókhald

Vigor verkbókhald er öflugt og fjölhæft kerfi sem heldur utan um kostnað, áætlanir og eftirlit með allt frá smáum verkum upp í stærstu virkjanaframkvæmdir.

Verkefnum er hægt að skipta í verkþætti með óendanlegum undirflokkum sem eru unnin af mörgum mismunandi framkvæmdaraðilum eða verktökum.

Í verkbókhaldinu er verkeftirlitskerfi til samþykktar á verklokum eða áfanga.

Öll rafræn skjöl eins og fundargerðir, tilboð, teikningar o.fl. sem tengjast verkinu er hægt að hafa aðgengileg beint úr kerfinu.

Verkbókhaldið gætir þess að allar fjárhagslegar upplýsingar séu réttar á hverjum tíma. Verkbókhaldið tengist beint inn í Vigor Vörukerfi þar sem innkaup til verksins fara fram, einnig eru tengingar inn í ýmis launakerfi til að halda utan um tímaskráningu. Kerfið getur haldið utan um kostnað við vélar og tæki sem notuð eru til verksins ásamt upplýsingum um verktaka og verk þeirra. Með þessum tengingum á að vera hægt að tryggja kostnaðarlega yfirsýn. Fjárhagsleg áætlanagerð er afar einföld og sýnileg sem skilar sér í arðbærum verkefnum og kostnaðarvitund fyrir framtíðarverkefni.

Hægt er að hlutfalls- og / eða áfangaskipta verki á marga verkkaupa, bæði á eigin deildir og viðskiptavini. Eigin deildir fá rafræna reikninga til samþykktar áður en bókun er framkvæmd.

Lögð er áhersla á að tímaskráning sé notendavæn og aðgengileg. Ekki er nauðsynlegt að vera á skrifstofunni við tímaskráningu en hægt er að skrá tíma á lokuðum vefsíðum eða í Windows Mobile símum. Það tryggir að tímar starfsmanna, tækja- og eldsneytisnotkun eru skráð hratt og örugglega í kerfið.

Næstu skref

Hafa samband við Vigor:
Sími: +354 563 6100

Hafa samband