• Veftré
  • English
  • A-
    A+
Þú ert hér:
  • > Lausnir
  • > Vigor - Viðskiptagreind

Vigor - Viðskiptagreind

Þörf fyrir samtölur úr rekstri er mismunandi eftir því hver þarf að skoða þær. Deildarstjóri vill sjá þær rekstrartölur sem að honum snúa á meðan stjórnandi vill skoða samanburð á rekstri milli deilda. Því er mikilvægt að fjárhagskerfið búi yfir sveigjanlegu og jafnframt notendavænu tóli sem getur unnið þær samtölur sem nauðsynlegar eru til að rannsaka rekstrarstöðu.

Vigor viðskiptagreind er fyrirspurnakerfi sem vinnur þvert á bókhaldslykla fjárhagskerfisins og birtir þær samtölur sem óskað er eftir fyrir hvaða tímabil sem er.

Í Vigor viðskiptagreind er alltaf unnið með rauntölur þannig að ekki er þörf á gagnatilfærslum í næturkeyrslum. Úr áhugaverðum samtölum er hægt að feta sig í stakar færslur og ef Vigor Samþykkta- og fylgiritakerfið er í notkun er hægt að skoða reikninginn á mynd á skjánum.

Þar sem starfsmenn vinna ekki endilega með samtölur á sama hátt er einfalt að forsníða samtöluskrár eftir þörfum hvers og eins. Skráin er alltaf aðgengileg með raunstöðu úr rekstrinum.

Næstu skref

Hafa samband við Vigor:
Sími: +354 563 6100

Hafa samband