• Veftré
  • English
  • A-
    A+
Þú ert hér:

Vigor - Vörukerfi

Birgðakerfi
Birgðakerfið heldur utan um birgðastöðu, sölusögu, verð og verðbreytingar, staðsetningu, birgja og annað er snertir vörustjórnun. Í vöruskrá er hægt að skrá lýsingu á mörgum tungumálum og er lengd hennar ótakmörkuð.
Vörunúmer tengist við strikamerki, gæðaflokka (staðla), vöruflokka og ýmsa aðra greiningarlykla.
Vörunúmer getur byggst á víddum, t.d. lit, stærð, lögun, tegund o.fl. sem auðveldar mjög leit að vöru eða sambærilegri vöru. Í kerfinu er einnig „vöruskrá birgja“ sem inniheldur m.a. lýsingu, verð, tollnúmer o.fl. auk þess sem hún nýtist til að fylgjast með vöruverði samkeppnisaðila. Birgðakerfið getur haldið utan um mörg vöruhús.

Innkaup
Pöntun er hægt að skrá sem verðathugun, t.d. til að afla tilboða í vörur. Verð- og tollútreikninga er hægt að framkvæma í pöntunarhluta en það er nauðsynlegt til að áætla verðmæti pöntunar.
Í móttöku eru kostnaður sem fellur á vöruna og upplýsingar varðandi tollafgreiðslu skráð, reiknað er út innkaupsverð hverrar vörulínu og söluverð ákveðið. Þegar móttaka er samþykkt (tekin inn á lager) er móttökufylgiskjal prentað, verðbreyting reiknuð og birgðir uppfærðar. Auk þess er nýtt einingaverð kostnaðar útbúið og bókhaldsfærslur myndaðar. Einnig er gerð tollskýrsla og hún ýmist prentuð eða send í rafrænu formi.

Næstu skref

Hafa samband við Vigor:
Sími: +354 563 6100

Hafa samband