Miklar breytingar eru að eiga sér stað hvað varðar viðskiptaumhverfi veitufyrirtækja. Sameining fyrirtækja og aukin markaðsvæðing kallar á nýjar áherslur. Umhverfið er flóknara og samkeppnin meiri.
Kerfið er fyrir veitufyrirtæki (hitaveitur, rafveitur, vatnsveitur og gagnaveitur). Kerfið hefur verið unnið með nýjustu tækni við hugbúnaðargerð í samvinnu Orkuveitu Reykjavíkur, Orkubús Vestfjarða og Vigor ehf.
Kerfið er hannað til að gera veitufyrirtækjum kleift að takast á við breyttar aðstæður í rekstri vegna aukinnar samkeppni, nýta nýja tækni s.s. Internetið til að miðla upplýsingum og að mæta kröfum um bætta þjónustu við viðskiptavini.
Tekið er mið af þörfum veitufyrirtækja um gagnaöryggi, yfirsýn, skilvirkni og sveigjanleika.
Orkureikningakerfið ber vitni metnaðarfullum innlendum hugbúnaðariðnaði sem í samvinnu við öfluga notendur getur tekist á við stór verkefni á sviði hugbúnaðargerðar.
Orkureikningakerfinu er skipt í tvö megin svið: Í viðskiptahluta eru m.a. geymdar upplýsingar um viðskiptavini fyrirtækisins s.s. um notandann, orkunotkun hans, útgefna reikninga, greiðslur, innheimtu o.fl. Markmið þessa hluta er að auka og bæta samskipti veitna og viðskiptavina.
Í tæknihluta eru upplýsingar, sem nauðsynlegar eru til að hægt sé að reka veiturnar, eins og mæla- og tækjaskrá, tenging við Netorku og miðlægan mælagagnagrunnur o.fl. Tilgangurinn er að auðvelda stjórnendum yfirsýn yfir tæknilegan hluta rekstrarins.
Mjög öflugar fyrirspurnir eru í kerfinu
Húsveituskrá
Geymir uppýsingar um húsveitur. Undir húsveitu eru annars vegar veituraðir tengdar notendum og hins vegar teljarar sem tengjast einstök um mælum eða öðrum gjaldaliðum.
Viðskiptamannaskrá
Geymir upplýsingar um viðskiptamenn. Viðskiptanúmer er óháð kennitölu
Sögur
Álestrar, flutningar, skilmálasaga, breyting dagsnotkunar, notendasaga, vanskilasaga, greiðslur, reikningar, kröfusaga, inneignir, afsláttasaga, textasögur, verkbeiðnasögur o.fl.
Orkutegundir
Gert er ráð þremur tegundum; heitu vatni, köldu vatni, rafmagni og gagnaveitu.
Reikningagerð
Öll þekkt söluform; greiðslumáti stýrir útgáfu, greiðsluseðlar, gíróseðlar, kröfumeðferð, boð- og beingreiðslur. Niðurgreiðslur og endurgreiddur virðisaukaskattur. Fá kerfi hér á landi senda frá sér fleiri reikninga á mánuði.
Greiðslumóttaka
Gjaldkerakerfi þar sem tekið er við greiðslum, borgaðar út inneignir, gjaldfærðir vextir o.fl. Greiðslur úr mismunandi greiðslumátum fara allar í sama farveg.
Innheimtueftirlit
Byggir á notkun „Inneimtubunka" sem notaðir eru til að beita stigvaxandi þrýstingi.
Mæla-og tækjaskrár
Mælir er tæki sem notað er til að mæla fjölda sölueininga húsveitu. Mælaskrá sýnir stöðu mæla, tengingu við húsveitu o.fl. Rafmagns-, heita-og kaldavatnsmælum er haldið í aðskildum skrám vegna mismunar í uppbyggingu. Hver mælir hefur teljara, einn eða fleiri, en teljararnir hafa mismunandi stafafjölda, einingar og margfeldisstuðla.
Þær skrár sem notaðar eru fyrir mæla eru: mælaskrá fyrir sameiginleg gildi, hitaveitumælaskrá og rafmagnsmælaskrá fyrir tæknileg atriði, teljaraskrá fyrir teljaraverk og loks söguskrár. Straumspennar og -liðar geta tengst rafmagnsmæli og prófunarlota getur tengst vatnsmælum.
Heimlagnakerfi
Öflugt kerfi sem heldur utan um ferlið frá því að viðskiptavinur óskar eftir að fá tengingu þar til húsveita er tekin í notkun.
Verkbókhald
Verkbeiðni skilgreinir mismunandi verk s.s. mælaskipti. Fylgir verki eftir og er atburður í sögu eftir verklok.
Ýmislegt
Útskriftir, listar o.fl.