Vigor Viðskiptahugbúnaður
Vigor Viðskiptahugbúnaður er íslenskur hugbúnaður hannaður af Vigor ehf. og ætlaður meðalstórum og stærri fyrirtækjum.
Kerfið er mjög notendavænt og auðvelt er að aðlaga það að sérstökum þörfum og kröfum notenda og tengja það öðrum hugbúnaði. Vigor kerfið getur hvort heldur notast sem heildstæð lausn eða sem einstakar sjálfstæðar einingar.
Hagkvæmni í rekstri og rekstraröryggi er einstakt. Fjöldi notenda og stærð gagnagrunns er nánast ótakmörkuð.
Vigor Orka
Vigor Orka er eitt útbreiddasta orkureikningakerfi landsins. Meirihluti veitufyrirtækja á landinu nota Vigor Orku. Liðlega 70% allra reikninga frá orkufyrirtækjum landsins hafa orðið til í upplýsingakerfinu Vigor Orku.
Vigor Orka er alíslenskt kerfi. Það er öflugt og sveigjanlegt og notað af fyrirtækjum sem senda út allt frá 100 og upp í 140.000 reikninga á mánuði.
Vigor Orka tengist fjölmörgum öðrum kerfum, eins og Vigor Heimlagnakerfi og Vigor Verkbókhaldi og einnig landupplýsingakerfum, mælaálestrakerfum, banka- og innheimtufélögum
Kynntu þér kosti Vigor Vistunar og hýstu öll gögn í öruggu vöktuðu umhverfi
Leitaðu nánari upplýsinga hjá okkur með því að hringja í síma 563 6100 eða senda tölvupóst á applicon@applicon.is.