10.09.09
Launagreining ParX 2009 er nú að hefjast. Greiningin hefur verið framkvæmd árlega síðan 1979 og snýst hún um það að veita stjórnendum íslenskra fyrirtækja upplýsingar um grunn- og heildarlaun íslenskra launþega, greindar eftir 80 starfsheitum, starfsgreinum, stærð fyrirtækja, aldri, menntun og starfsaldri. Þær upplýsingar sem um ræðir nýtast fyrirtækjum á ýmsa vegu, t.d. í stefnumótandi vinnu og við einstaka launaákvarðanir.
Niðurstöður í ár munu einnig sýna þróun sem orðið hefur á launum íslenskra launþega frá september 2008.
Vigor er í samstarfi við ParX viðskiptaráðgjöf í verkefninu. Samstarf þetta snýst um að auðvelda fyrirtækjum að taka gögn úr kerfum og skila þeim til ParX, en Vigor hefur sett upp skýrslu í Vigor Topplaunum sem keyrir út öll nauðsynleg greiningargögn og geta notendur kerfisins sent skýrsluna með rafrænum hætti til ParX.
Skráning í greininguna stendur nú yfir og fer hún fram á vefsíðu ParX (http://www.parx.is/). Einnig fer skráning fram í gegnum síma (s. 580 4368) og tölvupóst (helgi.thor.sigurdsson@parx.is).
Upplýsingar um skýrsluna veitir Vigor í síma 545 3400.