• Veftré
  • English
  • A-
    A+
Þú ert hér:

Vigor útgáfa 6.1

07.12.09

Fjölmargar nýjungar og endurbætur eru í útgáfunni. Vigor Viðskiptakerfið er stórlega endurbætt og er aðgerðum notenda til afgreiðslu á viðskiptavin (innheimta og eftirfylgni) nú komið fyrir í einni mynd. Einnig er boðið upp á ný öflug leitarsvæði.

Vigor Greiðsluþjónusta er nýr kerfishluti sem auðveldar greiðslumeðhöndlun og greiðsludreifingu. Helsta virkni Vigor Greiðsluþjónustukerfisins felst í aukinni skilvirkni, eftirfylgni og sveigjanleika í innheimtu krafna. Kerfið vinnur einnig sem greiðslusamningakerfi, t.d. er hægt að sameina margar kröfur í einn greiðslusamning með sveigjanlegum kjörum og gjalddögum.

Hjálpartextinn með kerfinu hefur verið stóraukinn og endurbættur.

Notendahandbækur sem fylgja með kerfinu eru nú aðgengilegri og endurbættar.

Nýja útgáfan er þegar komin í notkun hjá Tryggingamiðstöðinni. Fast á eftir fylgja síðan Faxaflóahafnir og Borgun.

Til baka