28.12.09
ParX hefur lokið úrvinnslu á þjónustukönnun fyrir Vigor sem framkvæmd var í vetrarbyrjun. Gagnlegar ábendingar fengust úr könnuninni um þjónustuna sem Vigor mun taka tillit til
Á heildina litið var niðurstaðan mjög góð og yfir meðaltali samanburðarfyrirtækja. Á heildina litið eru 90% ánægðir með þjónustu Vigor. Meðaltalið mælist 4,22 (á kvarðanum 1-5) og er talsvert yfir viðmiði (3,96)
„Vigor þakkar öllum þeim notendum sem tóku þátt í könnuninni fyrir afar jákvætt viðhorf til þjónustunnar og starfsfólks Vigor. Við munum áfram kappkosta að veita góða þjónustu og þróa Vigor kerfin í takt við óskir viðskiptavinanna og kröfur samfélagsins." segir Sigurður Bergsveinsson framkvæmdastjóri.
Þátttakendur í þjónustukönnuninni áttu kost á að vinna Canon Ixus 95 IS stafræna myndavél. Þegar dregið var úr innsendum svörum kom upp úr pottinum nafn Páls Jóhannssonar hjá Norðurorku. Honum hafa verið send verðlaunin.