25.01.10
Borgarbyggð og Heilbrigðiseftirlit Vesturlands hafa gert samning við Vigor um vistun á launakerfi sínu, Vigor Topplaunum.
Borgarbyggð og Heilbrigðiseftiritið hafa notað Vigor Topplaun við launaútreikninga og önnur launatengd mál í fjölda ára. Til þessa hefur Borgarbyggð notað eigin tölvu, en hefur nú ákveðið að fela sérfræðingum Vigor reksturinn. Með því að fela Vigor vistun kerfisins tryggir sveitarfélagið sér allar uppfærslur á stýrikerfi og launakerfi ásamt því að tryggja öryggi gagna.
Við bjóðum Borgarbyggð og Heilbrigðiseftiritið velkomin í Vigor Vistun.