• Veftré
  • English
  • A-
    A+
Þú ert hér:

Vigor sameinað Applicon

02.04.11

Ákveðið hefur verið að innleiða nýtt skipulag fyrir Nýherja og dótturfélög á Íslandi. Megin breytingarnar felast í sameiningu félaga í tengdri starfsemi og uppbyggingu stærri eininga sem veita þjónustu á sviði upplýsingatækni. Þar á meðal verður Applicon ehf. og Vigor ehf. sameinuð undir merkjum Applicon ehf.

Skipulagsbreytingarnar felast í eftirfarandi:

Rekstrar- og hýsingarfélagið Skyggnir ehf. og fyrirtækið Sense ehf., sem sérhæfir sig í hljóð- og myndlausnum auk Viðju ehf. verða sameinuð móðurfélaginu Nýherja hf. Skyggnir og Sense verða áfram vörumerki innan Nýherja hf. Eftir sameininguna verða starfsmenn Nýherja hf. um 270.

Applicon ehf. og Vigor ehf., sem sérhæfa sig í lausnum á sviði viðskiptahugbúnaðar verða sameinuð undir nafni Applicon ehf. „Vigor lausnir" verða þróaðar áfram og hluti af lausnaframboði Applicon ehf. Starfsmenn Applicon ehf. verða um 50 eftir sameininguna.

TM Software ehf., sem starfar að hugbúnaðarþróun og EMR heilbrigðislausnir ehf., sem á og þróar sjúkraskrárkerfi og lausnir á heilbrigðissviði, verða sameinuð undir merkjum TM Software ehf. Sjúkraskrárkerfi EMR, svo sem Saga, Hekla og fleiri kerfi verða hluti af lausnaframboði TM Software ehf. Starfsmenn TM Software ehf. verða um 65 eftir sameininguna.

Breytingarnar tóku gildi 1. apríl og verða kynntar viðskiptavinum félagsins nánar á næstunni. Heildarfjöldi starfsmanna Nýherjasamstæðunnar hérlendis og erlendis eru um 540.

Markmið þeirra breytinga, sem nú verða innleiddar hjá Nýherjasamstæðunni er að efla samkeppnisstyrk og sérstöðu félagsins á innlendum markaði og styrkja þjónustuframboð til viðskiptavina þess.

Nánari upplýsingar á vef Applicon.

Til baka